Pochettino um Alli: Hann er eins og ótaminn hestur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. október 2016 07:42 Alli og Pochettino á góðri stund. vísir/getty
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að ungstirnið Dele Alli sé eins og ótaminn hestur. Alli sló í gegn með Tottenham á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 10 mörk í 33 deildarleikjum. Alli sýndi einnig aðra hlið á sér á lokaspretti síðasta tímabils þegar hann kýldi Claudio Yacob, leikmann West Brom, og uppskar þriggja leikja bann fyrir. „Hann er gríðarlega hæfileikaríkur en var líka svolítið villtur. Núna er hann rólegri en hann má ekki tapa þessari hlið - hún gerir hann að sérstökum leikmanni,“ sagði Pochettino um lærisvein sinn sem kom til Tottenham frá MK Dons í fyrra. „Þetta er eins og þegar þú reynir að temja villtan hest. Það gengur ekki. Þetta er þroskaferli hjá ungum leikmönnum, að öðlast meiri reynslu og einbeita sér betur að fótboltanum.“ Pochettino segir að samband þeirra Allis sé stórgott. „Hann er einstakur, frábær náungi. Okkar samband er mjög gott. Hann er mjög tilfinningaríkur og við elskum hann allir,“ sagði Argentínumaðurinn. Tottenham, sem er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Bournemouth í næsta leik sínum í hádeginu á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira