Vantrauststillaga á leiðinni
Þannig segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, í pistli nú í kvöld: „Í þingmannahópi meirihlutans á Alþingi, í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, er margt gott fólk með hjartað á réttum stað og höfuðið rétt skrúfað á, sem raunverulega fór í pólitík af góðum hug og með það að markmiði að gera Ísland betra samkvæmt sínum skilningi. Eðlilega er maður oft ósammála þeim, ýmist um aðferðafræði, sjónarmið eða jafnvel grunngildi, enda eðlilegt í pólitík.
En núna virkilega liggur á því að þingmenn stjórnarmeirihlutans velti fyrir sér hvers vegna þeir fóru í pólitík. Fóru þeir í pólitík til að verja þetta? Eru þeir reiðubúnir til þess að leggja nafn sitt gegn vantrauststillögu eftir það sem nú hefur verið opinberað?

En ég neita að trúa því og ætla ekki að trúa því að meirihluti þingsins muni greiða atkvæði gegn tillögu um vantraust eftir þetta.“
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, er á svipuðu róli:

Orðspor á alþjóðavettvangi í rúst
En, það eru ekki bara stjórnmálamenn sem tjá sig. Gauti Eggertsson, sem meðal annars hefur starfað fyrir Bandaríska Seðlabankann, leynir því hvergi að honum er brugðið:
„Kastljós: Þetta eru skelfilegar fréttir fyrir alla Íslendinga og orðspor okkar á alþjóðavettvangi. Næstu skref eru mikilvæg. Ég vona að fólk persónugeri ekki hlutina heldur setja þetta í mun stærra samhengi. Þetta snýst ekki lengur um persónur heldur orðstír Íslands.“
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri segir: „Frá og með þessu kvöldi veit nánast öll Vestur-Evrópa, að Ísland er spilltasta land Evrópu.“

Hvar fást hauspokar?
Tónlistarmaðurinn Magga Örnólfs þykist slá á létta strengi: „Vei, við erum aftur heimsfræg! Hvar fást fallegir hauspokar?“
Þórarinn Þórarinsson blaðamaður er ekki bjartsýnn, venju fremur: „Snöggt yfirlit yfir Facebook bendir til þess að fjöldi fólks hafi misst allar veruleikatengingar í sturluðu bjartsýniskasti. Get a grip. Það er ekkert að fara að breytast!“
Illugi Jökulsson rithöfundur er orðinn vígamóður, við að gagnrýna Sigmund Davíð og ríkisstjórnina, en lætur þó hvergi deigan síga. „Þegar ég sat í stjórnlagaráði vorum við staðráðin í að leggja okkar af mörkum til að betrumbæta íslenskt samfélag, meðal annars og ekki síst með því að setja í stjórnarskrá stórbætt ákvæði um gegnsæi og heiðarleika og stjórnsýslu. Stjórnmálamönnum tókst að leggja stein í götu þess starfs. Nú þurfum við öll að leggjast á eitt til að ljúka því!“

Guð hjálpi Sigmundi
Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingar vill að forsætisráðherra segi af sér strax:
„Þvílík sturlun krakkar! Ég er orðlaus! Ég á von á því að forsætisráðherra segi af sér strax og #kastljós er búið, þing verði rofið og boðað verði til kosninga eins og skot. Þetta er ekki bara #vanhæfríkisstjórn - hér er um að ræða þvílíkan skort á siðferði, heiðarleika og trausti sem fer í sögubækurnar og verður erfitt að toppa! Slíkir einstaklingar eiga ekkert erindi í stjórnmál og fá ekki að stjórna þessu landi einn dag í viðbót. Sjáumst niðri á Alþingi á morgun!#cashljós #tortólastjórnin #lifibyltingin“
Meira að segja hinn frjálshyggjusinnaði lögmaður, Jón Magnússon, sem hefur átt í væringum við einmitt Semu Erlu, er þessu sammála:

Stjórnina frá strax
Helga Vala Helgadóttir er einnig lögmaður, sem og Jón, og hún vill stjórnina frá: „Nú verður forseti að rjúfa þing og skipa utanþingsstjórn þar til hægt er að halda þingkosningar. #hreinsumút“
Ómar R. Valdimarsson blaðamaður þarf ekki mörg orð: „Ókey bæ.“
Ólafur Arnarson hagfræðingur hefur þetta til málanna að leggja: „Mér segir svo hugur að forsætisráðherra hafi með ótrúlegri framkomu sinni og ósannsögli fyllt Austurvöll á morgun!“
Og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, vill valdið til fólksins: „1% elítan á og stjórnar Íslandi. Nú er það í höndum okkar hinna 99%-anna hvert framhaldið verður!“ Og flokkssystir hennar einnig, Björk Vilhelmsdóttir: „Ég vil að forsetinn boði til þingkosninga strax og að ríkisstjórnin segi af sér í kvöld #panamapapers“
Í ljósi umfjöllunar Kastljóss um tengsl ráðamanna við aflandsfélög:Í þingmannahópi meirihlutans á Alþingi, í Sjálfstæð...
Posted by Helgi Hrafn Gunnarsson on 3. apríl 2016
Nixon féll ekki vegna þess að sýnt hefði verið fram á að hann hefði fyrirskipað Watergate-innbrotið. Það var cover-up-ið...
Posted by Ólafur Þ Harðarson on 3. apríl 2016
Sjokkerandi uppljóstrun í Kastljósi kvöldsins. Sigmundur hefur tvo kosti, annarsvegar afsögn, hinsvegar útburð. Vona hann velji fyrrnefnda kostinn.
Posted by Lydur Arnason on 3. apríl 2016
Þessi mynd sýnir alvöru málsins í hnotskurn: Ísland komið á hópmynd sem okkur langar ekki að vera á. Komið er í ljós að...
Posted by Árni Páll Árnason on 3. apríl 2016