Hazard: Manchester City og Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2016 11:30 Eden Hazard. Vísir/Getty
Eden Hazard, leikmaður Chelsea, telur að Chelsea muni berjast um enska meistaratitilinn við Manchester City og Liverpool en einu stig munar nú á þessum þremur efstu liðum ensku úrvalsdeildarinnar. Hazard og félegar í Chelsea eru með eins stigs forskot eftir 2-1 sigur í Lundúnaslag á móti Tottenham um helgina en Chelsea-liðið hefur unnið sjö leiki í röð í deildinni. Belginn var spurður um það eftir leikinn hvaða lið hann telji muni berjast um titilinn við Chelsea á þessari leiktíð. „Manchester City og Liverpool. Þau eru bæði góð. Ef við viljum vera á toppnum í lokin þá þurfum við að enda ofar en þau,“ sagði Eden Hazard við enska blaðamann á blaðamannafundi eftir leikinn. Chelsea endaði bara í tíunda sæti á síðasta tímabili en er nú á miklu skrið og hefur sem dæmi markatöluna 19-1 í sjö leikja sigurgöngu sinni. Antonio Conte hefur komið með nýja og ferska vinda inn í liðið en Eden Hazard viðurkennir líka að það hjálpi liðinu að þurfa ekki að spila Evrópuleiki í vetur. „Við höfum eina viku til að undirbúa okkur fyrir leikina og þegar kemur að leikjunum okkar þá vitum við nákvæmlega hvað við þurfum að gera,“ sagði Hazard. „Á síðasta tímabili snérist þetta aðallega bara um endurheimt á milli leikja og við vorum ekki alltaf tilbúnir fyrir næsta leik. Það er ekki þannig núna. Við náum að einbeita okkur að næsta mótherja alla vikuna,“ sagði Harzard. Eden Hazard hefur skorað sjö mörk í fyrstu þrettán leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði fjögur mörk allt síðasta tímabil. Þau fjögur mörk komu öll í síðustu fimm leikjunum þannig að Eden Hazard hefur nú skorað 11 mörk í síðustu 18 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Uppgjörið : FH - Valur | Gylfi klúðraði víti og FH stal stigi í uppbótartíma Íslenski boltinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Enski boltinn Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Íslenskur ökumaður fagnaði sigri í Le Mans keppninni Sport Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Í beinni: Bournemouth - Arsenal | Skytturnar geta komist á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn