Skoðun

Hrægamma­bónusar

Félagar í InDeFence hóppnum skrifar
Það er búið að vera skrýtið að fylgjast með umræðunni um ofurbónusana sem starfsmenn slitabúanna eru að fá þessa dagana.

Það er eins og fólk viti ekki almennilega af hverju það er svona rosalega reitt. En nú eru margir að kveikja á perunni.

Þiggjendur bónusgreiðslnanna eru íslenskir erindrekar vogunarsjóðanna. Sjóða sem keyptu nánast heila landsframleiðslu á slikk í kreppunni – til að græða á efnahagsþrengingum Íslendinga.

Þetta eru mennirnir sem tókst að slá ryki í augu stjórnmálamanna, embættismanna og almennings. Þeim tókst að telja öllum trú um það að best væri að gefa vogunarsjóðunum sem mest eftir. Þeir myndu mæta 39% stöðugleikaskatti með lögsóknum. Niðurstaðan var að kröfuhafarnir greiddu miklu lægri stöðugleikaframlög og fengu þar með að losna undan fjármagnshöftum með stórfé.

Þannig færðu bónusþegar umbjóðendum sínum hundruð milljarða af fé sem réttilega hefði runnið í ríkissjóð. Nú eru þeir að fá „silfurpeninga“ sína, sem eru aðeins brotabrot af þeim upphæðum sem kröfuhafarnir höfðu úr þrotabúum gömlu föllnu bankanna.

Allt er þetta beinlínis á kostnað okkar hinna, sem enn sitjum föst í fjármagnshöftum. Það er síðan grátlegt að fylgjast með ráðherrum klóra sér í hausnum og hneykslast yfir bónusgreiðslum, sem þeir sköpuðu svigrúm fyrir með slökum nauðasamningum við kröfuhafana um þessi aumu stöðugleikaframlög.

Ólafur Elíasson

MBA

Agnar Helgason

mannfræðingur

Ragnar Ólafsson

félagssálfræðingur

Davíð Blöndal

eðlis- og tölvunarfræðingur

Torfi Ólafsson

verkfræðingur

Sveinn Valfells

eðlis- og hagfræðingur

Höfundar eru meðlimir í InDefence hópnum.

Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×