Skoðun

Hvert stefnir íslenski framhaldsskólinn?

Steinn Jóhannsson skrifar
Í nýlegum pistli Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, talar ráðherra um endurreisn framhaldsskólans. Endurreisnin er m.a. falin í því að fjárframlög til framhaldsskólanna muni aukast mjög á næstu árum eða allt til 2021 og verða með því hæsta sem gerist innan OECD. Undanfarin ár hafa íslenskir framhaldsskólar fengið töluvert lægra fjárframlag en meðaltal OECD og kom það skýrt fram í grein ráðherra. Þetta hefur m.a. leitt til þess að endurnýjun á búnaði hefur verið lítil sem engin sem hindrar skólastarf og þróun þess. Ástandið hefur verið sérstaklega erfitt í starfsnámi þar sem mikil endurnýjunarþörf hefur skapast. Það er því gleðiefni að framhaldsskólar muni fá fjárframlag sem hæfir rekstri hvers og eins á næstu árum en það eru enn orð á blaði sem vonandi rætast.

Það er ljóst að miklar breytingar hafa átt sér stað á síðustu árum í starfsemi framhaldsskólanna, t.d. innleiðing þriggja ára stúdentsbrauta, endurskoðun allra námsbrauta í starfsnámi og breyttar skilgreiningar á vinnutíma kennara (vinnumat). Allt hefur þetta í för með sér útgjaldaauka sem hefur haft veruleg áhrif á reksturinn.

Fjölmiðlar hafa ítrekað fjallað um erfiða rekstrarstöðu framhaldsskólanna og komið hefur fram að sumir skólar eiga ekki fyrir reikningum sem snerta daglegan rekstur. Það er ljóst að reiknilíkan framhaldsskólanna er orðið úrelt og rík þörf á endurskoðun þess strax. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis frá 2014 er ráðuneyti mennta- og menningarmála hvatt til þess að endurskoða reiknilíkanið og vinna hratt og vel þannig að tryggja megi að framhaldsskólarnir uppfylli hlutverk sitt.

Samkvæmt hálfs árs uppgjöri fjársýslunnar á rekstri framhaldsskólanna þá glímir u.þ.b. helmingur skólanna við rekstrarhalla. Ætla má að erfið rekstrarstaða sé fyrst og fremst tilkomin vegna eftirfarandi þátta: Reiknilíkanið gerir ekki ráð fyrir útgjaldaauka vegna breyttrar aldurssamsetningar kennara en kennarar sem eru 60 ára og eldri eru í dag tæplega fjórðungur kennara og njóta þeir um 25% afsláttar á vinnuframlagi kennsluþáttar. Reiknilíkan gerir ekki ráð fyrir að skólum sé bættur kostnaður vegna langtímaveikinda kennara. Jafnframt þarf að tryggja að launastika reiknilíkansins sé leiðrétt þannig að gert sé ráð fyrir raunlaunum og viðbótarlífeyrissparnaði sem nemur 2%. Það skortir gagnsæi á útreikningum reiknilíkansins þannig að óljóst er hversu mikið fjármagn er ætlað til ákveðinna rekstrarþátta.

Framhaldsskólinn á Íslandi hefur alla burði til að verða í fremstu röð skóla í Evrópu. Til að ná slíku markmiði þurfa yfirvöld, starfsfólk skólanna, nemendur og samfélagið að standa vörð um hagsmuni skólanna og tryggja þeim fjármagn sem gerir þeim kleift að sinna hlutverki sínu með sóma.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Skoðun

Vá!

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar

Sjá meira


×