Lést í sprengingu um borð í ferðamannabát á Balí Atli Ísleifsson skrifar 15. september 2016 09:44 35 ferðamenn voru í bátnum og fimm í áhöfn og er að minnsta kosti einn þýskur ferðamaður látinn. Vísir/AFP
Að minnsta kosti einn er látinn og fjórtán slasaðir eftir að ferðamannabátur sprakk undan ströndum Balí í morgun. Báturinn var á leið frá Bali í Indónesíu til eyjarinnar Gili Trawangan og var nýlagður af stað úr höfninni þegar mikil sprenging varð um borð. 35 ferðamenn voru í bátnum og fimm í áhöfn og er að minnsta kosti einn þýskur ferðamaður látinn. Ekki er ljóst hvort einhver þeirra sem slasaðist í sprengingunni sé í lífshættu. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni en lögregluyfirvöld á Balí telja þó ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Ástand ferja í Indónesíu þykir ekki upp á marga fiska og slys eru tíð. Svo virðist sem sprengingin hafi orðið við eldsneytistank bátsins þannig að líklegt þykir að skammhlaup hafi hlaupið í eldsneytið sem hafi orsakað sprenginguna. Á síðasta ári slösuðust tugir ferðamanna í svipuðu atviki þegar sprenging varð um borð í ferju sem var á leið frá Bali til eyjarinnar Lombok.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Erlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Mikil umferð vegna áreksturs í Kópavogi Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Fleiri fréttir Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Sjá meira