Shevchenko stýrir Úkraínu gegn strákunum okkar Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. júlí 2016 19:30 Andriy Shevchenko byrjar gegn spútnikliði EM 2016. vísir/getty
Andriy Shevchenko, fyrrverandi framherji AC Milan og Chelsea, var í dag ráðinn þjálfari úkraínska landsliðsins í fótbolta en hann spilaði 111 leiki fyrir það á glæstum ferli og skoraði 48 mörk. Shevchenko byrjaði í þjálfun fyrr á þessu ári þegar hann gerðist aðstoðarþjálfari úkraínska landsliðsins. Það komst á Evrópumótið í Frakklandi en var eina liðið sem átti ekki möguleika á að komast upp úr riðli í lokaumferð riðlakeppninnar. Þegar Mykhaylo Fomenko sagði upp störfum eftir dapra Evrópukeppni hjá landsliðinu var leitað til Shevchenko sem hefur aldrei starfað sem aðalþjálfari áður en hann er 39 ára gamall. Fyrsti mótsleikur Shevchenko með úkraínska landsliðið verður gegn Íslandi í undankeppni HM 2018 5. september á Ólympíuvellinum í Kænugarði. Þar verða engir áhorfendur vegna áhorfendabanns sem úkraínska landsliðið var sett í. Shevchenko var einn besti fótboltamaður sinnar kynslóðar en hann var kjörinn besti knattspyrnumaður Evrópu árið 2004. Hann vann úkraínsku deildina fimm sinnum með frábæru liði Dynamo Kiev og varð einnig Ítalíumeistari með AC Milan árið 2004. Hann hafnaði því að verða landsliðsþjálfari Úkraínu árið 2012 þegar hann lagði skóna á hilluna.
Fótbolti Mest lesið „Get ekki verið partur af sambandi sem leyfir rasisma“ Sport Eiður var óviss um Andra: „Hann var lítill og feitlaginn strákur“ Fótbolti Urðað yfir norska liðið: „Þetta var sjokkerandi lélegt“ Fótbolti Allt varð vitlaust í handboltaleik: Einn bitinn og hrækt á þjálfara Handbolti Sýndu Kolbeini hve góður hann hefur verið: „Er með marga vini í kringum sig“ Fótbolti Dagskráin í dag: Ísland mætir vonandi Tyrkjum Fótbolti „Næstum því eins og að sjá einhvern lenda á tunglinu“ Sport Heimir vill írskan Aron Einar Fótbolti Fóru illa með Haaland og félaga Fótbolti Skelfileg mistök Kellehers og tap hjá Heimi Fótbolti Fleiri fréttir Landsliði Nígeríu haldið í gíslingu á flugvelli án matar og drykkjar Áslaug Munda skoraði beint úr aukaspyrnu og lagði upp þrjú Lið Adams Inga gæti farið á hausinn í dag Eiður var óviss um Andra: „Hann var lítill og feitlaginn strákur“ Dagskráin í dag: Ísland mætir vonandi Tyrkjum Urðað yfir norska liðið: „Þetta var sjokkerandi lélegt“ Sýndu Kolbeini hve góður hann hefur verið: „Er með marga vini í kringum sig“ Fóru illa með Haaland og félaga Heimir vill írskan Aron Einar Frostið veldur óvissu og leiknum við Tyrki mögulega frestað Skelfileg mistök Kellehers og tap hjá Heimi Landsliðsmaður Finna með sérstakt tattú af Rooney Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham KSÍ vildi fá Albert sem bað um hvíld Frábær aukaspyrna í sigri Englands á Finnum Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Tyrkjum Saka hefði getað spilað gegn Finnum Ingibjörg og Hafrún léku báðar í grátlegu jafntefli Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Enn tapar Vardy fyrir Rooney í dómssalnum Býður upp á ítalska Haggis-pítsu til heiðurs McTominay og Gilmour Heimir minntist Baldock Ronaldo á skotskónum og VAR bjargaði Króötum Evrópumeistararnir lögðu Dani og Sviss en án stiga Sveindís hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Sædís og Vålerenga með níu fingur á titlinum Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Hareide kallar Sævar Atla inn Sjá meira