Innlent

Mikill viðbúnaður í Belgíu

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Frá Schaerbeek.
Frá Schaerbeek. visir/getty
Fjölmiðlar í Belgíu hafa greint frá því að mikill viðbúnaður sé í úthverfinu Schaerbeek í norðausturhluta Brussel. Fjölmennt lögreglulið hefur verið kallað til og samgöngur liggja að einhverju leyti niðri.

Belgíska lögreglan hefur ekki veitt upplýsingar um hver sé ástæðan fyrir viðbúnaðnum. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í fyrramálið.

Mannskæð hryðjuverk voru framin í Brussel í vor en 32 létust í sprengingum á alþjóðaflugvellinum í Brussel og á lestarstöð í borginni. 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×