Innlent

Lyfjaútgjöld 600 milljónir fram úr áætlun

Sveinn Arnarson skrifar
Taka myndir í apóteki af lyfjum - ekki einu glasi eða tveimur heldur mörgum tegundum. Gott að fá lyfjafræðing eða afgr.mann til að standa við lyfin og raðað þeim upp.
Taka myndir í apóteki af lyfjum - ekki einu glasi eða tveimur heldur mörgum tegundum. Gott að fá lyfjafræðing eða afgr.mann til að standa við lyfin og raðað þeim upp. Vísir/Pjetur
Útgjöld hins opinbera til lyfjakaupa stefna í að fara um 600 milljónir króna fram úr fjárheimildum í ár þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að setja um tvo milljarða í málaflokkinn í febrúar á þessu ári. þetta sýnir minnisblað Sjúkratrygginga sem sent var velferðarráðuneytinu í ágúst síðastliðnum.

Sé horft til fyrstu sex mánaða ársins er framúrkeyrslan frá fjárheimildum 11 prósent en endar í um níu prósentum í árslok. Segir í minnisblaðinu að skýringar sé að finna í innleiðingu nýrra lyfja.

Fréttablaðið greindi frá því um miðjan september að fé til innleiðingar nýrra lyfja væri uppurið. Eftir þann tíma hefur Lyfjagreiðslunefnd hins vegar samþykkt leyfisskyldu vegna tveggja lyfja sem eykur kostnað um 60 milljónir á ársgrundvelli. „Með leyfisskyldum lyfjum er átt við þau lyf sem eingöngu eru notuð í samræmi við klínískar leiðbeiningar og eru jafnan kostnaðarsöm og vandmeðfarin,“ segir Guðrún Gylfadóttir, formaður lyfjagreiðslunefndar.

Að auki hefur nefndin samþykkt einstaklingsundna greiðsluþátttöku vegna níu lyfja og er áætlaður kostnaður þar einnig um 60 milljónir króna á ársgrundvelli.

Jakob Falur Garðarsson, formaður frumtaka - samtaka framleiðenda frumlifja
Af þessu að dæma er ljóst að lyfjakaup munu fara fram úr fjárlögum. Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, félags frumlyfjaframleiðenda, segir lyfjaverð hins vegar ekki of hátt. „Það er fjarri sanni að lyfjaverð á Íslandi sé hátt. Ég nefni því til staðfestingar að verð sjúkrahúslyfja er samkvæmt reglugerð það lægsta á Norðurlöndunum. Því til viðbótar, þá er verðið fasttengt gengi krónunnar, þannig að um hver mánaðamót kemur ný lyfjaverðskrá sem tekur mið af gengisbreytingum. Gríðarleg styrking krónunnar undan­farin misseri skilar sér því strax í verðið og hefur beinar afleiðingar til lækkunar lyfjaverðs og hefur verðið nú lækkað um tugi prósenta á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Jakob Falur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×