Skoðun

Tvískinnungur og skammsýni bæjarráðs Ísafjarðarbæjar

Jón Helgi Björnsson skrifar
Afstaða bæjarráðs Ísafjarðarbæjar er allrar athygli verð þegar kemur að sjókvíaeldi á laxi í Ísafjarðardjúpi. Í fjölmiðlum hefur komið fram að bæjarráðið hafi samþykkt áskorun til til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varðandi áform Arnarlax ehf. um að hefja laxeldi í sjó í Jökulfjörðum. Skorað er á ráðherra að sjá til þess að óheimilt verði að stunda fiskeldi í Jökulfjörðum og leggst ráðið jafnframt gegn því að fiskeldi verði staðsett á svæðinu og telur algerlega óhugsandi að úthluta laxeldisleyfum án þess að ítarleg vinna með íbúum, landeigendum og öðrum hagsmunaaðilum hafi farið fram.

Þá segir ennfremur í áskoruninni að „Jökulfirðirnir eru friðland okkar og djásn. Framsýni þeirra var mikil sem gerðu Hornstrandir að friðlandi árið 1975. Hornstrandir og Jökulfirðir eru í dag einstakt svæði fyrir þær sakir og er bæjarráði Ísafjarðarbæjar umhugað um að svo verði áfram.“

Landssamband veiðifélaga tekur heils hugar undir þessi sjónarmið bæjarráðsins en spyr bæjarráðið jafnframt hvort hið sama eigi ekki við um þær laxveiðiár sem falla til Ísafjarðar? Þarf enga framsýni þegar óspilltar laxveiðár á svæðinu eiga í hlut? Er þá í lagi að skammsýni og stundarhagsmunir ráði ferð?

Nú er það svo að sjókvíaeldi í Jökulfjörðum getur varla valdið neikvæðum og óafturkræfum umhverfisspjöllum á friðlandinu á Hornströndum. Aðeins yrði um að að ræða sjónmengun vegna staðsetningar eldiskvía á svæðinu ásamt staðbundinni mengun vegna lífræns úrgangs frá laxeldinu. Í einni svipan má því endurheimta ásýnd svæðisins með því að fjarlægja eldismannvirkin og er þá svæðið komið í sama horf og áður. Annað gildir um laxveiðiárnar. Þar eru neikvæðar afleiðingar vegna erfðablöndunar af völdum strokulaxa úr eldinu óafturkræfar. Til að bíta svo höfuðið af skömminni klykkir bæjarráðið út með því að fagna áformum um uppbyggingu fiskeldis í Ísafjarðardjúpi og styður þau.

Af þessu verður aðeins ráðið, að þegar friðlandinu sleppir, sjái bæjarráðið enga ástæðu til að vinna með landeigendum eða hagsmunaaðilum. Þeir hagsmunir sem fólgnir í í laxveiðánum á svæðinu sýnast því skipta bæjarráðið afar litlu máli. Þá virðist bæjarráðið ekki heldur sjá ástæðu til að láta mikla framsýni ráða gerðum sínum þegar ómældum stuðningi er lýst yfir við áform um að staðsetja laxeldiskvíar í námunda við laxveiðiperlur, sem ótvírætt verður að telja „djásn“ Vestfjarða.

Landssamband veiðifélaga beinir því þeirri áskorun til bæjarráðs Ísafjarðarbæjar að vinna með okkur að verndun laxveiðiánna við Ísafjarðardjúp og feta með því í fótspor þeirra sem sýndu þá miklu framsýni forðum að gera Hornstrandir að friðlandi sem ekki má spilla. Með því mun bæjarráðið uppskera virðingu og þakklæti þeirra sem í framtíðinni njóta óspilltrar náttúru Vestfjarða.




Skoðun

Sjá meira


×