Bandaríkin fallast á bótagreiðslu vegna drónaárásar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. september 2016 21:31 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa samþykkt að greiða fjölskyldu ítalsks hjálparstarfsmanns, sem féll í flugskeytaárás Bandaríkjamanna í Pakistan í fyrra, eina milljón evra, eða tæplega 130 milljónir króna í bætur. Það er í fyrsta skipti sem Bandaríkin samþykkja bótagreiðslu af þessu tagi. Tveir létu lífið í árásinni, hinn ítalski Giovanni Lo Porto, og Warren Weinstein frá Bandaríkjunum, en þeir höfðu verið í haldi vígamanna al-Kaída samtakanna í ríflega tvö ár. Guardian greinir frá því að yfirvöld í Bandaríkjunum hafi talið fjölskyldunum trú um að mönnunum tveimur yrði sleppt úr haldi, einum mánuði áður en flugskeytaárásin var gerð. Barack Obama Bandaríkjaforseti baðst í kjölfarið afsökunar á árásinni, en stærði sig á sama tíma af því að bandarísk stjórnvöld hefðu brugðist við með því að greina opinskátt frá því sem gerðist. Ítalskir fjölmiðlar greina frá bótagreiðslunum, en ekki er vitað hvort bandarísk stjórnvöld hyggist greiða fjölskyldu Weinstein einhverjar bætur. Árás Bandaríkjamanna var gerð út á dróna, eða mannlausu flygildi líkt og þeim sem Bandaríkin hafa notað í stórum stíl undanfarin ár til árása á hryðjuverkamenn í Pakistan og víðar.
Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Fleiri fréttir Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Sjá meira