Enski boltinn

Napoli og Roma vilja kaupa Darmian

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Matteo Darmian.
Matteo Darmian. vísir/getty
Það er ekki víst að ítalski bakvörðurinn Matteo Darmian verði í herbúðum Man. Utd þegar ágústmánuður er allur.

Darmian kom til Man. Utd síðasta sumar frá Torino. Hann byrjaði vel en síðan fór að halla undan fæti hjá honum.

Hann er búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði United og önnur félög eru því byrjuð að pota í hann.

Samkvæmt heimildum Sky Sports þá hafa bæði Napoli og Roma áhuga á að kaupa hann frá United.

Ekki er vitað hvort Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, hafi einhvern áhuga á að selja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×