Lífið

Reyna að taka sjálfsmynd og gefa sér fimmu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Seth Schneider hefur ýtt æði úr vör.
Seth Schneider hefur ýtt æði úr vör. Twitter
Svo virðist sem nýjasta æðið á samfélagsmiðlunum sé að taka af sér sjálfsmynd um leið og maður gefur sér fimmu.

Fjölmargir netverjar hafa fylgt í fótspor Seth Schneider sem virtist hafa framkvæmt hið ómögulega í gær.

Þá birti hann mynd af sér á Twitter þar sem hann náði fyrrnefndu afreki, án þess að notast við þrífót eða annað tól til að aðstoða sig við myndatökuna.

Heimsbyggðin virðist hafa áttað sig á því hversu ótrúlegt afrek þetta var og hefur mynd Schneider nú verið deilt rúmlega 100 þúsund sinnum.

Ekki leið á löngu áður en aðrir netverjar fylgdu í fótspor ofurhugans. Hér að neðan má sjá nokkur dæmi. Vísir óskar öllum þeim sem vilja láta á þetta reyna góðs gengis og vonar bara að sem flestir símar komist óskaddaðir frá æfingunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×