Þrettán úrvalsdeildarfélög keyptu leikmann fyrir metfé í sumarglugganum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2016 21:30 vísir/getty
Eins og fjallað var um á Vísi fyrr í dag keyptu félögin í ensku úrvalsdeildinni leikmenn fyrir rúman milljarð punda í félagskiptaglugganum sem lokaði í gær. Alls eyddu félögin 1,165 milljarði punda sem er talsvert bæting frá sumarglugganum í fyrra. Þá settu félögin met með því að kaupa leikmenn fyrir 870 milljónir punda. Þrettán af 20 félögum í ensku úrvalsdeildinni keyptu leikmenn fyrir metfé í sumarglugganum í ár. Manchester United gerði sem frægt er Paul Pogba að dýrasta leikmanni allra tíma þegar félagið greiddi Juventus 89,3 milljónir punda fyrir hann. Fimm félög borguðu metfé fyrir leikmenn á lokadegi félagaskiptagluggans í gær.Tottenham Hotspur borgaði 30 milljónir punda fyrir Moussa Sissoko en Lundúnaliðið hreinlega stal honum fyrir framan nefið á Everton. Leicester City sló eyðslumetið þrívegis í félagaskiptaglugganum, síðast í gær þegar félagið keypti alsírska framherjann Islam Slimani frá Sporting Lissabon fyrir 29 milljónir punda. Leicester var áður búið að greiða metfé fyrir Nampalys Mendy (13 milljónir punda) og Ahmed Musa (16,6 milljónir punda).Sunderland pungaði út 13,6 milljónum punda fyrir gabonska miðjumanninn Didier N'Dong, nýliðar Hull City greiddu 12,5 milljónir punda fyrir Ryan Mason og aðrir nýliðar, Burnley, borguðu 10,5 milljónir punda fyrir írska landsliðsmanninn Jeff Hendrick.Moussa Sissoko er dýrasti leikmaður í sögu Tottenham Hotspur.vísir/gettyÞessi 13 félög keyptu leikmann fyrir metfé í sumarglugganum í ár: Manchester United: Paul Pogba, 89,3 milljónir punda frá Juventus Tottenham Hotspur: Moussa Sissoko, 30 milljónir punda frá Newcastle United Leicester City: Islam Slimani, 29 milljónir punda frá Sporting Lissabon Crystal Palace: Christian Benteke, 27 milljónir punda frá Liverpool West Ham United: André Ayew, 20,5 milljónir punda frá Swansea City Southampton: Sofiane Boufal, 16 milljónir punda frá Lille Swansea City: Borja Bastón, 15,5 milljónir punda frá Atlético Madrid Bournemouth: Jordon Ibe, 15,3 milljónir punda frá Liverpool Sunderland: Didier N'Dong, 13,6 milljónir punda frá Lorient West Brom: Nacer Chadli, 13 milljónir punda frá Tottenham Watford: Isaac Success, 12,75 milljónir punda frá Granada Hull City: Ryan Mason, 12,5 milljónir punda frá Tottenham Burnley: Jeff Hendrick, 10,5 milljónir punda frá Derby County
Enski boltinn Mest lesið Sagan endalausa hjá Åge: „Þetta er frekar sjokkerandi“ Fótbolti Bellamy skammaði blaðamenn eftir leik Fótbolti Kári sagði Kolbein steinsofandi: Það versta er að þeir vissu þetta Fótbolti Stefnir í stríð á milli tveggja af stærstu handboltafélögum heims Handbolti Æfir hjá gamla félagi föður síns Fótbolti Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Enski boltinn Einkunnir Íslands gegn Wales: Varamaðurinn Logi maður leiksins eftir ótrúlega innkomu Fótbolti Leik lokið: Valur - Haukar 28-22 | Ekkert hik á Valskonum Handbolti Albert verður ekki kallaður inn í íslenska hópinn Fótbolti Hareide: „Við gerðum skelfileg mistök“ Fótbolti Fleiri fréttir Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Sjá meira