Enski boltinn

Markalaust hjá Leicester og Southampton

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Leicester og Southampton skildu jöfn, markalaus, í leik liðanna í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en leikurinn fór fram á heimavelli Englandsmeistaranna.

Leicester er nú án sigurs í tveimur leikjum í röð í úrvalsdeildinni en liðið er aðeins með átta stig eftir sjö leiki. Titilvörnin byrjar ekkert sérstaklega vel en liðið er þó með fullt hús í frumraun sinni í Meistaradeildinni.

Southampton var fyrir leikinn búið að vinna tvo leiki í röð en Dýrlingarnir eru nú með níu stig eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×