Fótbolti

Coman vill ekki fara frá Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Coman í leik með Bayern.
Coman í leik með Bayern. vísir/getty
Franska ungstirnið Kingsley Coman er óviss um hvar hann spilar í vetur.

Þessi tvítugi strákur er í eigu Juventus en var lánaður til Bayern síðasta vetur. Þar náði hann að slá í gegn og spila mikið fyrir Bayern.

Alls lék Coman 23 leiki fyrir Bayern á síðustu leiktíð og skoraði fjögur mörk.

Leikmaðurinn hefur farið fram á að fá að vera áfram í láni hjá Bayern en Juventus hefur ekki ákveðið hvað það vill gera við hann.

„Ég vil endilega vera áfram hjá Bayern enda eitt besta félag heims. Ég kom hingað til þess að vera hér næstu árin,“ sagði Coman en hann skoraði mark Bayern sem sló Juventus út úr Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×