Þakplötur og gámar fuku á Hofsósi nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 27. desember 2016 16:13 Myndin tengist fréttinni ekki beint. mynd/landsbjörg
Þakplötur fuku af íbúðarhúsum á Hofsósi og fatagámar tókust á loft í hvassviðrinu í dag. Þetta staðfesti Elvar Már Jóhannsson hjá Björgunarsveitinni Gretti á Hofsósi. Sveitin sinnti útköllunum um eittleytið í dag. Kröpp lægð hefur verið yfir landinu í dag með tilheyrandi hvassviðri og regni. Öllu innanlandsflugi var aflýst í dag og ferðaveður hefur verið slæmt. Meðal annars var Þjóðvegi 1 lokað við Hvalnes og Hlíðarsand, austan við Höfn í Hornafirði. Vindhraðinn var mestur á vestanverðu landinu en að sögn Þorsteins G. Gunnarssonar, upplýsingafulltrúa hjá Landsbjörgu, er útlit fyrir að óveðrinu sé að slota þrátt fyrir að víða séu enn sterkar hviður. Að sögn Þorsteins var þó ekki mikið um útköll miðað við aðstæður. Þau útköll sem björgunarsveitir sinntu í dag voru helst á Vesturlandi, þar sem vindhraðinn var mestur. Í Reykjanesbæ og Stykkishólmi þurfti að kalla út björgunarsveitafólk til þess að festa vinnupalla sem voru að fjúka og einnig var óskað eftir aðstoð björgunarsveita á Bíldudal. Í vikunni er von á nokkrum lægðum og því ærin ástæða til þess að fara varlega á næstu dögum. „Það er nauðsynlegt að fylgjast vel með veðrinu og sæta lagi milli lægða, ekki leggja í hann þegar veðurhæðin er vaxandi,“ sagði Þorsteinn.Hér er hægt að fylgjast með óveðrinu á gagnvirku veðurkorti af Íslandi.
Tengdar fréttir Öllu innanlandsflugi aflýst 27. desember 2016 10:55 Fylgstu með veðrinu á gagnvirku korti Djúp lægð gengur nú yfir landið. 27. desember 2016 12:48 Færð á vegum: Víða hálka og búist við asahláku Stormi er spáð víðast hvar á landinu í dag. 27. desember 2016 10:28 Vindhviður farið yfir 30 metra í Reykjavík Veðrið að ná hámarki á suðvesturhorninu og fikrar sig svo norður 27. desember 2016 13:06 Mest lesið Albert sýknaður Innlent Þorði ekki að hringja í lögregluna eftir að hafa kveikt í sumarbústað Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Innlent Mikið tjón eftir að herbergið fylltist af vatni Innlent Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Erlent Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Innlent Efast um að málinu verði áfrýjað Innlent Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Erlent Fleiri fréttir Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Riddari kannana mætir í Samtalið Sjá meira
Færð á vegum: Víða hálka og búist við asahláku Stormi er spáð víðast hvar á landinu í dag. 27. desember 2016 10:28
Vindhviður farið yfir 30 metra í Reykjavík Veðrið að ná hámarki á suðvesturhorninu og fikrar sig svo norður 27. desember 2016 13:06