Sir Alex: Liverpool mjög líklegt til að vinna titilinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2016 15:45 Jürgen Klopp er að gera góða hluti á Anfield. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Liverpool komi svo sannarlega til greina sem sigurvegari í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Hann er mjög hrifinn af Jürgen Klopp sem, að hans sögn, er búinn að endurvekja einkenni félagsins. Ferguson var maðurinn sem felldi Liverpool af stallinum sem sigursælasta félag Englands. Liverpool hefur unnið 18 Englandsmeistaratitla en Ferguson kom United í 20 áður en hann hætti. Liverpool hefur ekki unnið ensku deildina síðan 1990 en nú gæti biðin verið á enda. Liðið er með 20 stig eins og Manchester City og Arsenal þegar níu umferðir eru eftir. „Klopp hefur staðið sig mjög vel og endurvakið áhugann hjá Liverpool,“ segir Sir Alex í viðtali við þýska tímaritið Kicker. „Það getur alveg komið fyrir að stórlið missi það. Í tvo áratugi skipti Liverpool um knattspyrnustjóra án þess að finna sitt einkenni.“ „Það verður að telja Liverpool líklegt til að vinna titilinn á þessu tímabili. Maður sér bara hversu einbeittur Klopp er á hliðarlínunni. Ég er viss um að hann er eins á æfingum. Hann er stór persónuleiki og það er mikilvægt hjá svona stóru félagi,“ segir Ferguson. Aðeins eitt stig skilur að liðin í fimm efstu sætunum en Manchester United er svo sex stigum frá toppliðunum undir stjórn José Mourinho. „Það eru fimm lið líkleg til að vinna titilinn. Manchester City er sigurstranglegast en svo koma Tottenham og Liverpool. United getur líka unnið ef það finnur stöðugleika fljótlega,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Í beinni: Ísland - Litháen | Verða að vinna Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Sjá meira