Hátíðin stendur í dag og þrjá næstu daga og samanstendur af sýningu í Gerðarsafni og fjölmörgum tónleikum og gjörningum í öðrum listhúsum Kópavogs.
Um eitt hundrað íslenskir og alþjóðlegir listamenn taka þátt, auk þess sem nemendum Listaháskólans gefst kostur á að taka þátt í vinnustofum og fyrirlestraröðum. Yfirskriftin er Þá.

„Ætli við höfum ekki verið með svona tíu manns hér í að minnsta kosti viku við að búa til ný verk? Margir koma líka með verk annars staðar að sem eru fullgerð,“ segir Guðný, sem sjálf kemur frá Berlín beinlínis til að halda utan um hátíðina sem listrænn stjórnandi með Tinnu Þorsteinsdóttur tónlistarkonu.
Þetta er annað árið sem Cycle er haldin. „Það er augljós áhugi fyrir hendi, enda er Cycle afsprengi vissrar umræðu um þverfagleika í listum sem átt hefur sér stað seinustu 15 til 20 árin,“ segir Guðný.
En er ekki erfitt að setja svona hátíð upp þannig að ólík atriðin falli hvert að öðru?
„Jú, Eva Wilson er sýningarstjóri í Gerðarsafni í samstarfi við okkur Tinnu. Hún er fagmaður sem kemur með nýja sýn inn í okkar mengi á Íslandi.“

„Gjörningaklúbburinn fór til Berlínar og nokkrir íslenskir listamenn tóku þátt í stórri sýningu í Moskvu í framhaldi af Cycle í fyrra,“ bendir hún á.
Spurð hvort hún óttist ekki að almenningi finnist hátíðin of framandi svarar hún: „Það finnst mér óþarfa aðgreining. Hver sá sem er haldinn forvitni á erindi. Stærsta skrefið er að opna hugann fyrir nýjungum. Frítt er á alla viðburði svo það þarf ekki að vera stór ákvörðun að mæta.“
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 27. október 2016.