Rannsaka dularfullan dauðdaga þýsks sjómanns Birgir Olgeirsson skrifar 29. febrúar 2016 23:46 Skúta þýska sjómannsins. Vísir/EPA
Yfirvöld á Filippseyjum rannsaka dularfullan líkfund eftir að skúta þýsks sjómanns fannst á reki um 100 kílómetrum undan strönd bæjarins Barobo í Surigeo del Sur-héraði. Það voru sjómenn sem fundu skútuna síðastliðinn fimmtudag en í henni var lík eiganda hennar, Manfred Fritz Bajorat, að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC. Þar segir að enn sé á huldu hvernig og hvenær dauða hans bar að.Þýski sjómaðurinn, Manfred Fritz BajoratVísir/EPALík hans fannst við talstöðina í skútunni og virtist hann hafa verið að reyna að nota hana áður en hann lést. Lögreglan segist ekki hafa fundið vísbendingar um átök en hún vinnur nú að því að rekja siglingaleið Bajorats og ræða við þá sem höfðu verið í sambandi við hann. Réttarmeinafræðingar telja að hann hafi dáið meira en fjórum dögum áður en skútan Sajo fannst. Fréttaveitan AFP hefur eftir lögregluvarðstjóra Barabo, Mark Navales, að dauði þýska sjómannsins sé enn hulin ráðgáta.BBC segir þýska sendiráðið í borginni Manila ekki hafa viljað tjá sig um málið að svo stöddu.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sautján ára piltur lést í brunanum á Stuðlum Innlent „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent „Þetta er nákvæmlega það sem ég á að vera að gera“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Innlent Fleiri fréttir Aftur rafmagnslaust á Kúbu Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Sjá meira