Skoðun

Snilldar- hugmyndin

Erlendur Steinn Guðnason skrifar
Eins og aðrir fæ ég hugmyndir á hverjum degi um allt milli himins og jarðar, eins og t.d. að endurraða í skápana í eldhúsinu eða hvernig best er að leysa úr ákveðnu verkefni. Einstaka sinnum læðist „snilldarhugmynd“ að manni. Slíkar hugmyndir þarfnast mikillar áræðni og orku við að hrinda í framkvæmd og reynist það yfirleitt erfiðasti hjallinn.

Í tvö skipti hef ég bægt skynseminni frá til að elta þann draum að koma „snilldarhugmynd“ í framkvæmd.

Fyrra skiptið var árið 2000. Á meðan aðrir veltu fyrir sér hvernig tölvukerfi heimsins myndu bregðast við árþúsundaskiptum, sátum við fjögur heima í stofu að skrifa viðskiptaáætlun um hvernig við gætum breytt heiminum með betri leitarvél fyrir íslenskan markað. Þá var ekkert sprotaumhverfi, viðskiptahraðl­ar eða Tækniþróunarsjóður en í staðinn bönkuðum við upp á hjá stórfyrirtæki í bænum og fengum fund með forstjóra sem stuttu síðar ákvað að kannski væri eitthvert vit í þessum ungmennum.

Nokkrum mánuðum síðar sprakk netbólan og viðskiptamódelið okkar. Þrátt fyrir að upphafleg markmið næðust ekki þá komum við mörgum nýstárlegum verkefnum í framkvæmd. Eftir sátum við reynslunni ríkari og fórum hvert í sína áttina. Ég tók að mér að koma á fót þjónustuveri fyrir tölvuleikinn EVE Online sem þá var í þróun, þróa Sjónvarp og Ljósnet Símans svo eitthvað sé nefnt.

Sextán árum síðar kallar „snilldarhugmynd“ aftur á mig og í þetta skipti er það félagi minn Pétur Orri Sæmundsen sem smitar mig af ólæknandi þörf fyrir að koma Vizido út í heiminn. Vizido, www.vizido.com, er app sem hjálpar lesblindum að muna og vinna með öðrum í kringum vídeó og myndir. Við trúum því að Vizido muni einnig nýtast öllum sem vilja einfalda og nýstárlega leið til að fanga eitthvað til að muna með snjallsímanum.

Það eru ótrúlegar framfarir sem hafa orðið á sprotaumhverfinu á þessum sextán árum. Með stuðningi við sprota með Tækniþróunarsjóði, viðskiptahröðlum, Icelandic Startups, Samtökum sprotafyrirtækja og sprotafjárfestingarsjóðum hefur jarðvegurinn aldrei verið betri fyrir góðar hugmyndir. Hugvit er nefnilega óþrjótandi uppspretta sem vex og dafnar með hverju verkefninu.

Framtíð barna okkar er björt ef við höldum áfram að gera hugviti hátt undir höfði og leyfum fleiri „snilldarhugmyndum“ að verða að veruleika.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Sjá meira


×