Þjóðernissinnar stærri en Kristilegir demókratar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. september 2016 07:00 Flokkur Angelu Merkel fékk útreið. Nordicphotos/AFP
Alternative für Deutschland, flokkur þjóðernissinna í Þýskalandi, fékk betri kosningu en Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans Angelu Merkel, í kosningum sambandsríkisins Mecklenburg-Vorpommern í gær, ef marka má útgönguspár. Búist er við því að AfD hafi fengið um 22 prósent atkvæða, flokkur jafnaðarmanna um þrjátíu prósent en Kristilegir demókratar tæp tuttugu prósent. Kristilegir demókratar hafa aldrei fengið jafnslæma kosningu í ríkinu. Ríkið er heimaríki Merkel og velta þýskir fjölmiðlar því fyrir sér hvort þetta bendi til kosningasigurs AfD í þingkosningum sem fram eiga að fara á næsta ári. Kristilegir demókratar hafa með Jafnaðarmannaflokknum farið með stjórntaumana í Mecklenburg-Vorpommern undanfarið kjörtímabil og var ekki búist við því að breyting yrði þar á. Leif-Erik Holm, oddviti AfD í ríkinu, var kátur þegar hann talaði við þýska fjölmiðla í gær. „Kannski er þetta upphafið að endalokum kanslaratíðar Angelu Merkel,“ sagði hann. Holm byggði kosningabaráttu sína á andstöðu við flóttamannastefnu ríkisstjórnarinnar og telur hann að Þjóðverjar taki á móti of mörgum flóttamönnum. Það sé á kostnað hins almenna borgara. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent „Það vill enginn vera eins og Steingrímur J.“ Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Fleiri fréttir Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Sjá meira