Enski boltinn

Pardew mun skrifa undir nýjan samning eftir tímabilið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace.
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace. Vísir/Getty
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Crystal Palace, hefur nú staðfest að hann muni skrifa undir nýjan samning við stjórnendur félagsins eftir tímabilið.

Crystal Palace vann góðan sigur á Stoke 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í gær og er liðið komið yfir 40 stiga múrinn í deildinni.

Dwight Gayle skoraði bæði mörk liðsins en þetta var samt sem áður bara annar sigur liðsins í síðustu tuttugu deildarleikjum Palace og vildi Pardew ekki skrifa undir nýjan samning við félagið fyrr en staðfest væri að liðið myndi leika í efstu deild á næsta tímabili.

Crystal Palace er komið í úrslitaleikinn í enska bikarnum og mætir það Manchester United þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×