Sádi-Arabía geti ekki geta falið glæpina Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. janúar 2016 06:00 Íranar í Teheran mótmæla aftökunni á sjía-klerknum Nimr al Nimr í Sádi-Arabíu. Vísir/EPA
Hassan Rúhani, forseti Írans, segir að Sádi-Arabía geti ekki „falið glæpi sína“ með því að slíta tengslin við Íran. Hann á þar við aftökuna á sjía-klerkinum Nimr al Nimr, sem Íranar hafa fordæmt harðlega. Þetta sagði hann á fundi með utanríkisráðherra Danmerkur, Kristian Jensen, sem skrapp í heimsókn til Írans að hitta þarlenda ráðamenn. Jensen segir spennuna milli Írans og Sádi-Arabíu vera allsráðandi umræðuefni í Íran þessa dagana, en vonaðist þó til að geta rætt samskipti Írans og Danmerkur við íranska ráðamenn. Aftakan í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, um helgina hefur þó ekki víða verið fordæmd. Hins vegar hafa ríki víða um heim fordæmt harðlega framferði íranskra mótmælenda, sem meðal annars kveiktu í sendiráði Sádi-Arabíu í Teheran á sunnudag. Þannig fordæmdi öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í fyrrinótt íkveikjuna harðlega og skoraði á írönsk stjórnvöld að vernda sendiráð og aðrar byggingar erlendra sendifulltrúa gegn árásum eða skemmdum. Í gær bættist Kúveit við þau ríki, sem slitið hafa stjórnmálatengsl við Íran vegna íkveikjunnar. Sádi-Arabía reið þar á vaðið, síðan gerðu Barein og Súdan slíkt hið sama. Sameinuðu arabísku furstadæmin létu sér hins vegar nægja að kalla sendiherra sinn heim frá Íran. Sádi-Arabía segir þó að þessi stirðu samskipti við Íran eigi ekki að hafa nein áhrif á viðleitni beggja ríkjanna til að koma á friði í Sýrlandi.
Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Sjá meira