Erlent

Táningsstúlka drap móður sína og kærasta hennar og fagnaði svo áramótum

Atli Ísleifsson skrifar
Destiny Garcia.
Destiny Garcia.
Fimmtán ára bandarísk stúlka hefur verið ákærð fyrir morð á móður sinni og kærasta móðurinnar í Brooklyn.

Bandarískir fjölmiðlar segja hina fimmtán ára Destiny Garcia hafa játað að hafa banað 38 ára móður sinni, Rosie Sanchez, og Anderson Nunez, fertugum kærasta hennar.

Lögregla segir að lík þeirra hafi fundist í íbúð í Sheepshead Bay í gær. Lík Sanchez fannst í stól og virðist sem hún hafi látið lífið af völdum fjölda skotsára. Nunez fannst látinn á stofugólfi íbúðarinnar með skot- og stungusár.

Að sögn lögreglu er talið að Garcia hafi drepið þau 27. desember og að Garcia hafi sjálf dvalið í íbúðinni með líkunum í nokkra daga. Þá hafi hún einnig farið á Times-torg í New York til að fagna áramótum.

Garcia segir að móðir sín hafi beitt hana líkamlegu ofbeldi og að hún hafi drepið þau Sanchez og Nunez í sjálfsvörn. Lögregla hefur ekki tekið frásögn Garcia trúanlega og telur hafa hafa keypt skotvopnið af fimmtán ára dreng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×