Erlent

Einn í dái og fimm aðrir alvarlega veikir í kjölfar prófana á nýju lyfi í Frakklandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sex manns eru alvarlega veikir eftir að hafa tekið þátt í prófunum á nýju lyfi í Frakklandi, samkvæmt upplýsingum frá franska heilbrigðisráðuneytinu.

Af þessum sex einstaklingum er einn svo alvarlega veikur að hann er í dái en allir sex voru við góða heilsu áður en þeir fóru að prófa lyfið.

Ráðuneytið hefur ekki gefið upp um hvaða lyf er að ræða en tilraunastofan þar sem lyfjaprófanirnar fóru fram er einkarekin og sérhæfð í því að prófa lyf. Hún er  í Rennes í Brittany-héraði. Öllum prófunum á lyfinu hefur nú verið frestað.

Marisol Touraine, heilbrigðisráðherra Frakklans, ætlar til Rennes í dag vegna málsins, samkvæmt frétt BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×