ISIS lýsir yfir ábyrgð á árásunum í Jakarta Samúel Karl Ólason skrifar 14. janúar 2016 16:21 Einn þeirra sem særðist í árásunum í morgun. Vísir/EPA
Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum í Jakarta í Indónesíu í morgun. Samtökin segja árásarmennina hafa verið „hermenn kalífadæmisins“ sem hafi ráðist gegn borgurum „bandalags krossfara“. Þar vísa samtökin til bandalagsins sem berst gegn ISIS. Fimm árásarmenn, þar af þrír með sprengjubelti, lögðu til atlögu í hverfi þar sem finna má verslunarmiðstöðvar, sendiráð og skrifstofur Sameinuðu þjóðanna. Árásarmennirnir féllu allir sem og tveir borgarar. Einn frá Indónesíu og annar frá Kanada. Fyrsta árásin var gerð á Starbucks-stað þar sem einn árásarmannanna sprengdi sig í loft upp. Við það hlupu viðskiptavinir út þar sem tveir vopnaðir menn biðu þeirra og skutu á þau. Þar létust báðir áðurnefndir borgarar.Sjá einnig: Segja árásarmennina hafa verið innblásna af hryðjuverkaárásunum í París Skömmu eftir það keyrðu tveir menn á mótorhjólum að lögregluþjónum og sprengdu sig í loft upp. Fjórir lögregluþjónar eru í alvarlegu ástandi vegna sprenginganna. Lögreglan skiptist á skotum við árásarmennina sem eftir voru og segir lögreglan að heimagerðum sprengjum hafi verið kastað að þeim. Skrúfum og nöglum hafði verið komið fyrir í sprengjunum og lögreglan fann sex aðrar sprengjur eftir að vígamennirnir höfðu verið felldir. Mikil mildi þykir að fleiri hafi ekki fallið í árásinni.
Mest lesið „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Innlent Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Erlent „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Erlent Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Erlent Fleiri fréttir „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Sjá meira