Erlent

Yfirmönnum leyfilegt að skoða netspjall starfsmanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Starfsmenn áttu aðeins að nota Yahoo Messenger í vinnutengdum samskiptum.
Starfsmenn áttu aðeins að nota Yahoo Messenger í vinnutengdum samskiptum. Vísir/Getty
Mannréttindadómstóll Evrópu segir að rúmenskt fyrirtæki hafi verið í fullum rétti þegar yfirmenn skoðuðu skilaboð sem starfsmaður sendi á vinnutíma. Dómur var kveðinn upp í gær en áður hafði starfsmaðurinn tapað málinu í heimalandi sínu. Málið má rekja aftur til ársins 2007 en hann var rekinn úr starfi þar sem hann braut reglur um internetnotkun hjá fyrirtækinu.

Maðurinn notaðist við Yahoo Messenger en starfsmenn fyrirtækisins mátti ekki sinna persónulegum erindum á vinnutíma sínum. Komust þeir að því að hann ræddi hvort sem er við viðskiptavini og vini sína í gegnum samskiptaforritið. 

Í ljósi þess að fyrirtækið taldi sig vera að skoða samskiptaforrit sem maðurinn notaði við vinnu sína, enda mátti hann ekki nota það til annars, hefði fyrirtækið ekki brotið á réttindum mannsins. Maðurinn taldi að fyrirtækið hefði gerst brotlegt með því að skoða einkasamtöl hans.

Þar sem maðurinn mátti ekki nota Internetið til einkanota á vinnutíma er ljóst að ekki skiptir máli á hvaða formi samskiptin voru. Sama hefði gilt um tölvupósta, What's App, Facebook messenger og svo mætti lengi telja.

Allir nema einn dómari sammála

Sjö af átta dómurum MRE voru sammála og sögðu vinnuveitandann ekki hafa farið út fyrir mörk sín. Samtölin hefðu átt að vera öll vinnutengd og ekkert óeðlilegt við að yfirmenn vildu vera vissir að maðurinn væri að vinna vinnuna sína. Fyrir lá bann um að senda persónuleg skilaboð með forritinu.

Einn dómaranna skilaði séráliti og taldi ekki forsvaranlegt að banna starfsmönnum að nota Internetið á þennan hátt. Útskýra þyrfti vel í þeim tilfellum sem fyrirtæki takmörkuðu aðgang starfsmanna að netinu.

Fullkomlega löglegt að loka á persónulega netnotkun

Breskur prófessor í netlögum segir dóminn í samræmi við bresk lög og fyrri mál af svipuðum toga

„Í þessu tilfelli var morgunljóst að yfirmenn leyfðu starfsmönnum ekki að nota Internetið nema til vinnu. Þótt það sé ekki vinsælt er það fullkomlega löglegt.“

Dómar Mannréttindadómstólsins eru fordæmisgefandi í Evrópusambandslöndum. Ísland er aðili að dómstólnum með samningi hjá Evrópuráðinu.

Frétt BBC af málinu má lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×