Erlent

Dönsk táningsstúlka dæmd í níu ára fangelsi fyrir morð á móður sinni

Atli Ísleifsson skrifar
Bakhtiar Mohammed Abdullah hlaut þrettán ára dóm, en Lisa Borch níu ára dóm.
Bakhtiar Mohammed Abdullah hlaut þrettán ára dóm, en Lisa Borch níu ára dóm. mynd/instagram
Landsréttur í Álaborg staðfesti í morgun dóm héraðsdóms yfir danskri táningsstúlku og íröskum vini hennar fyrir morð á móður stúlkunnar á Jótlandi árið 2014.

Hin sextán ára Lisa Borch hlaut níu ára dóm, en hinn 29 ára Bakhtiar Mohammed Abdullah þrettán ára dóm auk þess að honum verður vísað úr landi að afplánun lokinni.

Þau Borch og Abdullah foru dæmd fyrir morðið á fertugri móður Borch, Tine Rømer Holtegaard, en hún lést af völdum sára sem hún hlaut vegna um tuttugu hnífstungna þar sem hún lá sofandi í rúmi á heimili sínu í Kvissel á Norður-Jótlandi þann 8. október 2014.

Ætluðu sér að ganga í hjónaband

Í frétt DR segir að í dómum komi fram að þau hafi verið kærustupar og ætlað sér að ganga í hjónaband. Móðir Boorch hafi hins vegar verið mjög mótfallin ráðahagnum.

Saksóknari fór fram á dómurinn yfir þeim yrði þyngdur þar morðið hafi verið skipulagt, kaldrifjað og grimmdarlegt.

Verjandi Abdullah sagði að milda ætti dóminn vegna stöðu Abdullah sem flóttamaður, auk þess að hann hafi þjáðst af áfallasteituröskun vegna erfiðra uppvaxtarára. Verjandi Borch sagði að milda ætti dóminn yfir henni vegna ungs aldurs.

Þau Borch og Abdullah voru jafnframt dæmd til að greiða allan málskostnað, auk þess að stúlkan missir rétt sinn til arfs.

Gjörólík tvíburasystur sinni

Danska blaðið BT ræddi við eiginmann hinnar látnu og stjúpföður Lisu, Jens Holtegaard, eftir að dómur féll í Álaborg í september.

Sagði hann að Lisa hafi lent í slæmum félagsskap og umturnast mánuðina fyrir morðið eftir að hafa hafið störf á veitingastað í Frederikshavn þar sem hún hafi kynnst Abdullah.

Þá lýsir hann henni sér sérstaklega undirförulli og gjörólíkri tvíburasystur sinni sem einnig bjó á heimilinu.

Grunsamleg hegðun

Lisa hringdi sjálf á lögreglu og tilkynnti að hún hafi komið að móður sinni útaðtaðri í blóði. Hún var ein í húsinu þegar lögregla mætti á vettvang en var handtekin nokkru síðar eftir að lögregla fann engin merki þess að brotist hafi verið inn í húsið.

Þá þótti hegðun hennar grunsamleg og lýstu bæði lögreglumenn og sjúkralið því að hún hafi verið bæði róleg og köld í fasi.

Hringdi á leigubíl áður en hringt var í neyðarlínuna

Nokkrum klukkustundum síðar var Abdullah handtekinn vegna gruns um aðild að morðinu.

Í yfirheyrslum skiptust þau Lisa og Abdullah á að saka hvort annað um að hafa borið ábyrgð á dauða Tinu.

Í dómnum segir að blóð úr Tinu hafi fundist í fötum Abdullah og upplýsingar úr síma Lisu sýndu fram á að hún hafi hringt í leigubíl fyrir Abdullah og í fleiri vini sína, áður en hún hringdi í neyðarlínuna.

Þá þykir ljóst að Lisa hafi ekki veitt móður sinni fyrstu hjálp líkt og starfsmaður Neyðarlínunnar skipaði henni að gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×