Erlent

Skúrkur í kvikmyndum um Guðföðurinn látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Abe Vigoda varð 94 ára gamall.
Abe Vigoda varð 94 ára gamall. Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn Abe Vigoda er látinn, 94 ára að aldri.

Vigoda er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem skúrkurinn Salvatore „Sal“ Tessio í fyrstu tveimur myndum Francis Ford Coppola um Guðföðurinn, sem komu út 1972 og 1974.

Að sögn dóttur hans, Carol Vigoda Fuchs, andaðist Vigoda á heimili sínu í New Jersey í gær.

Vigoda gerði einnig garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í þáttunum Barney Miller á árunum 1974 til 1977.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×