Erlent

Köstuðu reyksprengjum í átt að lögreglu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Leigubílstjórar köstuðu reyksprengjum að lögreglu.
Leigubílstjórar köstuðu reyksprengjum að lögreglu. Nordicphotos/AFP
Verkföll flugumferðarstjóra, leigubílstjóra og starfsmanna hins opinbera um gjörvallt Frakkland í gær lömuðu samgöngur í landinu. Illa var hægt að komast á stærstu flugvelli landsins, meðal annars Charles de Gaulle í París. Tugum flugferða var því frestað.

Mikill hiti var í leigubílstjórum. Um þrjú hundruð leigubílstjórar lokuðu vegum umhverfis höfuðborgina París, hentu reyksprengjum í átt að lögreglu og kveiktu í dekkjum. Nítján­ voru handteknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×