Breytingar á Barbie: Foreldrar lengi kvartað undan einsleitninni Birta Björnsdóttir skrifar 30. janúar 2016 19:18 Fyrir helgi komu á markað þrjár nýjar tegundir af Barbie, ein sem er smávaxin, önnur hávaxin og sú þriðja þéttvaxnari en forveri hennar. Mynd/Mattel
Í vikunni var ráðist í umfangsmestu breytingar sem orðið hafa á högum hinnar 57 ára gömlu Barbie. Breytingarnar eru tilkomnar vegna gagnrýni á einsleitni dúkkunnar auk þess sem Barbie selst ekki sem fyrr. Vinsælasta dúkka allra tíma hefur lengi legið undir ámæli fyrir að vera óheilbrigð fyrirmynd varðandi líkamsvitund. En nú skal verða breyting þar á. Tónninn var sleginn í fyrra þegar Barbie fékkst í fyrsta skipti í sjö mismunandi húðlitum, með 22 ólíka liti á augum auk þess sem 24 mismunandi hárgerðir eru nú í boði á dúkkunum. Fyrir helgi komu svo á markað þrjár nýjar tegundir af Barbie, ein sem er smávaxin, önnur hávaxin og sú þriðja þéttvaxnari en forveri hennar. Sala á Barbie-dúkkum hefur dregist umtalsvert saman undanfarin ár og dúkkan farið halloka í samkeppni við önnur leikföng. Ekki er ólíklegt að sú staðreynd ráði miklu um þessa nýjung framleiðandans, Mattel. Þetta eru mestu breytingar sem orðið hafa á högum hinnar 57 ára gömlu Barbie og þykir mörgum löngu kominn tími til. „Foreldrar hafa lengi kvartað undan einsleitninni og vilja leikföng sem endurspegla raunveruleikann," segir Jim Silver, eigandi leikfangaverslunar í Bandaríkjunum. Enn er óvíst hvort fyrir Ken liggi viðlíka breytingar.
Tengdar fréttir Barbie breytir til eftir 57 ár: Þrjár nýjar útgáfur kynntar Eftir mikla gagnrýni á óraunhæft líkamsform Barbie-dúkkunnar hefur Mattel kynnt til sögunnar þrjár nýjar útgáfur. 28. janúar 2016 19:00 Mest lesið Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Sjá meira
Barbie breytir til eftir 57 ár: Þrjár nýjar útgáfur kynntar Eftir mikla gagnrýni á óraunhæft líkamsform Barbie-dúkkunnar hefur Mattel kynnt til sögunnar þrjár nýjar útgáfur. 28. janúar 2016 19:00