Handbolti

Tvö íslensk mörk í tapi Mors-Thy

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert Aron í leik með ÍBV.
Róbert Aron í leik með ÍBV. vísir/vilhelm
Íslendingaliðið Mors-Thy varð að sætta sig við enn eitt tapið í danska handboltanum í kvöld.

Að þessu sinni tapaði liðið gegn Bjerringbro, 25-22. Mors-Thy er því sem fyrr í tíunda sæti deildarinnar.

Guðmundur Árni Ólafsson og Róbert Aron Hostert skoruðu báðir eitt mark í leiknum.

Bjerringbro er í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×