Erlent

Komið nóg af ferðamönnum

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Cinque Terre á Ítalíu.
Cinque Terre á Ítalíu. Mynd/Heimsferðir
Íbúar í Cinque Terre, fimm litlum og fallegum sjávarþorpum á norðvesturströnd Ítalíu, eru búnir að fá nóg af ferðamönnum og það eru yfirvöld líka. Í fyrra komu þangað 2,5 milljónir ferðamanna.

Yfirvöld óttast að svæðið, sem er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn á Ítalíu, þoli ekki allan þennan fjölda og nú hefur verið ákveðið að takmarka fjöldann við 1,5 milljónir á ári.

Það er einkum farþegum á skemmtiferðaskipum frá nærliggjandi höfnum sem hefur fjölgað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×