Skoðun

Er eitthvað óeðlilegt að gerast varðandi Seglbúðir?

Matreiðslumeistarar skrifar




Þann 11. nóvember 2015 fór hópur af eldri félögun Klúbbs matreiðslumeistara í heimsókn til nýja heimasláturhússins að Seglbúðum hjá Erlendi Halldórssyni og konu hans. Þessi ferð var okkur mikið forvitnisefni enda höfðum við fylgst með áhuga á opnun þessa fyrsta löglega heimasláturhúss á landinu.

Erlendur og kona hans sögðu hina ótrúlegu raunasögu sem þau þurftu að ganga í gegnum til að fá atvinnuleyfi. Þessi raunasaga er reyndar svo ótrúleg að það er að okkar áliti kraftaverk að þau hafi ekki einfaldlega gefist upp. Þarna er rekið sláturhús sem getur skaffað vöru sem hefur verið látin kólna í tveimur stigum og síðan hanga í kæli í fjóra sólarhringa fyrir frystingu.

Seglbúðir geta skaffað nafn á bæjum sem kjötið kemur frá, sem æ fleiri gefa mikið fyrir. Hvort sem um lamb eða stórgripi er að ræða. Hin sláturhúsin í landinu geta ekki einu sinni lofað því að lambið sem þú kaupir sé nýslátrað eða meira en ársgamalt. Sem við höfum því miður persónulega reynslu af. Nú er búið að loka fyrir dreifingu frá húsinu og eftir því sem undirritaðir hafa lesið í fjölmiðlum og eftir viðtal við Erlend eru ástæðurnar að mestu leyti misskilningur byggður að stærstum hluta á því að ekki hafi fengist leyfi til að taka út húsið af eftirlitsaðilum á tíma sem verið var að setja inn línu fyrir stórgripi og engin slátrun í gangi í langan tíma.

Við, þessir matreiðslumeistarar sem fórum á staðinn og skoðuðum aðstöðuna, skorum á yfirvöld í viðkomandi greinum og ráðherra að ganga í að taka málið föstum tökum og koma á sáttum svo hægt verði að reka staðinn á þann frábæra hátt sem húsið er byggt fyrir.

Við fögnum því að einhver hafi riðið á vaðið með að reisa svona sláturhús sem að okkar mati er að gera hlutina hárrétt. Því miður erum við ekki svo vissir um þær aðferðir sem viðhafðar eru í flestum af stóru sláturhúsunum, þar sem hraðinn á slátrun og verkun er orðinn svo mikill að það er farið að koma niður á gæðum.

 

Bragi Ingason

Einar Árnason

Guðjón Steinsson

Hilmar B. Jónsson

Karl Finnbogason

Ragnar Guðmundsson

Sigurvin Gunnarsson

Jón G. Sigurðsson




Skoðun

Sjá meira


×