Skoðun

Forsætisráðherra sest með Kára

Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ætlar að setjast niður með Kára Stefánssyni. Heilbrigðiskerfið verður eflaust til umræðu þar. Eitt af því sem ráðherrann getur áorkað strax er að vinna í að hans flokkur greiði atkvæði gegn breytingum á áfengislöggjöfinni.



Kári tók nýlega undir andmæli allra fagstétta sem vinna að menntun og velferð barna varðandi breytingar á áfengislöggjöfinni. Þegar Kári stofnaði Velferðarsjóð íslenskra barna árið 2000 var full þörf á að hlúa betur að börnum á Íslandi. Sjóðurinn hefur frá stofnun styrkt um meira en 800 milljónir króna margvísleg verkefni sem hlúa að velferð og geðheilbrigði barna. Enn er aðkallandi að sinna geðheilbrigðismálum barna betur, eins og langir biðlistar segja til um. Nú hefur allsherjar- og menntamálanefnd samþykkt frumvarpið um breytt fyrirkomulag á sölu áfengis. Í samþykkt nefndarinnar kemur fram að heimilisofbeldi muni aukast með breyttu fyrirkomulagi á sölu áfengis. Undirritaður veit ekki til þess að slík samþykkt máls með yfirlýsingu um afleiðingar samþykktar hafi átt sér stað áður á alþingi eða í þingum landa sem við berum okkur saman við. Heimilisofbeldi hefur margvíslegar alvarlegar afleiðingar, ekki síðst á geðheilbrigði barna. Í miklum meirihluta tilfella eru börn og barnshafandi konur fórnarlömb.



Eitt mikilvægasta viðfangsefni samfélagsins er að efla geðheilbrigði barna. Það er málefni sem stofnanir samfélagsins sem fjalla um heilsu og almannaheill eru einhuga um. Allar fagstéttir sem vinna að menntunar- og velferðarmálum hafa bent á skaðann sem aukið aðgengi að áfengi veldur. Samtök foreldrafélaga og samtök barna og ungmenna eru í hópi þeirra sem eru andvíg sölu áfengis í matvöruverslunum. Meira en 70 prósent kvenna eru samkvæmt könnun Fréttablaðsins andvíg því að selja áfengi í verslunum.



Eitt helsta þrekvirki velferðarkerfisins er árangurinn sem náðst hefur í jafnrétti kynjanna en með því að fara gegn vilja kvenna og barna í þessu máli er stigið risaskref afturábak í jafnréttismálum. Hér er um að tefla stærra mál en svo að það snúist bara um hver fær að selja hvað. Aðgerða er þörf og flokkur ráðherrans dugar til að fella frumvarpið. Í leiðinni að tryggja að heilbrigðiskerfið veiti fjármagn til geðheilbrigðisþjónustu, frekar en vinnu vegna afleiðingar aukinnar áfengisneyslu.



Hvort ætlar forsætisráðherra Íslands að standa með þjóðinni eða forsvarsmönnum verslunarinnar í þessu mikilvæga máli?




Skoðun

Sjá meira


×