Lífið samstarf

Svarti hvítlaukurinn og umami á Haust

Svarti hvítlaukurinn.
Svarti hvítlaukurinn.
Á veitingastaðnum Haust á Fosshóteli, Reykjavík er nýlega tekinn til starfa sem yfirkokkur hinn eftirsótti Jónas Oddur Björnsson. Hann hefur starfað á Michelin-stöðum bæði í Frakklandi og Kaupmannahöfn og hikar ekki við að fara ótroðnar slóðir í matargerðarlistinni.

Jónas hefur að eigin sögn mjög gaman af tilraunum en ein af þeim er svarti hvítlaukurinn sem þegar hefur borið hróður hans víða. Hvítlaukurinn er eldaður í 30 daga við mjög lágan hita og margir ganga svo langt að segja að í svarta hvítlauknum hafi Jónasi Oddi tekist að ná fram hinu ljúffenga umami, bragði sem er sætt, salt, beiskt og súrt í senn, eins konar fimmta bragðskynjunin.

Margir hafa mikla trú á hollustu hvítlauks og virkni hans í lækningaskyni. Svarti hvítlaukurinn er þó talinn enn öflugri og innihalda tvöfalt meira af andoxunarefnum en ómeðhöndlaður hvítlaukur. Svarta hvítlaukinn sinn notar Jónas í ýmsa rétti, m.a. sem krydd í sósur og krem. Það er enda Jónasi metnaðarmál að Haust öðlist sitt eigið „bragð“ og verði þekkt fyrir frumlegan stíl.

Jónas Oddur
Eftirsóttur kokkur

Jónas Oddur fékk snemma áhuga á matargerð enda er það fag sem getur opnað atvinnutækifæri um allan heim. Hann hefur lagt sig fram um að öðlast víðtæka reynslu og kynnast straumum og stefnum og læra sem mest. Að loknu námi hér heima starfaði hann á Michelin-stjörnu stöðum bæði í Frakklandi og Kaupmannahöfn auk þess sem hann var  aðstoðaryfirkokkur í lúxus-heimsreisum m.a. á amerísku skemmtiferðaskipi. Jónas notar íslenskt úrvalshráefni hvenær sem hann kemur því við og á matseðlinum á Haust má treysta því að finna fjölmargar forvitnilegar nýjungar.

Nánari upplýsingar um Haust má finna hér.

Veitingastaðurinn Haust á Fosshóteli Reykjavík.
Franska eldhúsið er undirstaða alls þess besta

Að mati Jónasar er franska matreiðslan og franska eldhúsið í raun undirstaða alls þess besta sem gert er á veitingahúsum um heim allan. Síðustu áratugi hefur verið byggt ofan á þennan grunn, straumar hafa þróast þaðan og hráefni hvers staðar setur mark sitt á þá þróun að sjálfsögðu og gróskan er ótrúlega mikil. Dæmi um þetta er norræna eldhúsið sem reyndar sækir áhrif til alls heimsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.