Sport

Tvö silfur og fjögur brons á NM í Karate

Stefán Árni Pálsson skrifar
Á meðfylgjandi mynd má sjá verðlaunahafa, frá vinstri Kristín Magnúsdóttir, Máni Karl Guðmundsson, Embla Kjartansdóttir, María Helga Guðmundsdóttir, Edda Kristín Óttarsdóttir, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Arna Katrín Kristinsdóttir og Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson.
Á meðfylgjandi mynd má sjá verðlaunahafa, frá vinstri Kristín Magnúsdóttir, Máni Karl Guðmundsson, Embla Kjartansdóttir, María Helga Guðmundsdóttir, Edda Kristín Óttarsdóttir, Svana Katla Þorsteinsdóttir, Arna Katrín Kristinsdóttir og Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson.
Í gær fór fram Norðurlandameistaramótið í karate sem haldið var í Ålaborg, Danmörku. Ísland var með 21 keppanda á mótinu og stóðu þau sig öll vel.  Hópkataliðið í kvennaflokki vann til silfurverðlauna eftir að hafa mætt danska hópkataliðinu í úrslitum, þar sem okkar lið framkvæmdi kata Enpi.

Í einstaklingsflokkum stóð María Helga Guðmundsdóttir best þegar hún keppti í -55kg flokki.  Í fyrstu umferð mætti María Sabina Laaveri frá Svíþjóð, María vann viðureignina 3-2, í annarri umferð mætti María hinni dönsku Amalie Poulsen og fór létt með hana, viðureignin endaði 5-1 fyrir Maríu. 

Í úrslitum mætti María Helga Ariana Alic frá Noregi, sú viðureign var jöfn þó svo að sú norska hafi unnið 7-2. Þess má geta að María Helga mætti þeirri norsku svo í liðakeppni og þá vann María viðureign þeirra 6-1.

Í juniorflokki endaði Máni Karl Guðmundsson uppi með brons í kumite -61kg. Máni vann Oliver Danielsen frá Danmörku í fyrstu viðureign 2-0 en í undanúrslitum tapaði hann fyrir Daniel Johnsen frá Noregi. Í viðureigninni um 3ja sætið mætti Máni Malek Refai frá Svíþjóð í jafnri viðureign, Máni Karl stóð uppi sem sigurvegari og bronsið hans.

Í junior kumite -59kg keppti Edda Kristín Óttarsdóttir við Oona Tammisto frá Finnlandi þar sem Edda sigraði 5-0, í undanúrslitum tapaði Edda fyrir Heliose Hedbom frá Svíþjóð. Í viðureigninni um bronsið mætti Edda Pernille Stumberg frá Noregi í jöfnum og skemmtilegum bardaga sem Edda stýrði allan tímann og stóð uppi sem sigurvegari og bronsið því hennar.

Í cadetflokki keppti Embla Kjartansdóttir í kumite -47kg, Embla tapaði fyrir Amalie Pedersen frá Noregi í fyrstu viðureigninni, en í bardaganum um bronsið vann hún Emmelie Sode frá Danmörku 5-0.  

Í cadet kumite -70kg mætti Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson Johannes Korpela frá Finnlandi en sá finnski vann 4-1. Ágúst fékk uppreisn og réttinn til að berjast um 3ja sætið þar sem hann mætti Christian Bendiksen frá Noregi, sú viðureign var jöfn en Ágúst skoraði gott stig og vann 1-0 og því bronsið hans.

Aðrir keppendur okkar stóðu sig einnig mjög vel, margir áttu mjög góðan dag og voru í baráttu um bronsverðlaun en biðu lægri hlut.  Greinilegt er að liðið okkar er að styrkjast og vera betra.

Verðlaun Íslands á NM 2016; Silfur í hópkata kvenna; Arna Katrín Kristinsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Svana Katla Þorsteinsdóttir Silfur í kumite kvenna -55kg; María Helga Guðmundsdóttir

Brons í kumite junior -61kg; Máni Karl Guðmundsson Brons í kumite junior -59kg; Edda Kristín Óttarsdóttir Brons í kumite cadet -47kg; Embla Kjartansdóttir

Brons í kumite cadet -70kg; Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson

Hér að neðan má sjá brot úr kumiteviðureignum gærdagsins ásamt því að landsliðsþjálfarinn í kumite, Ingólfur Snorrason, ræðir um árangur dagsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×