Handbolti

Tvö íslensk mörk í tapi Holstebro

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Egill skoraði eitt mark í leiknum.
Egill skoraði eitt mark í leiknum. vísir/vilhelm
Egill Magnússon og Sigurbergur Sveinsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Team Tvis Holstebro sem tapaði 27-25 fyrir Skjern í úrslitakeppni dönsku 1. deildarinnar í handbolta í kvöld.

Þetta var þriðji leikur Holstebro í A-riðli úrslitakeppninnar en liðið situr á toppi hans með sex stig.

Holstebro vann tvo fyrstu leiki sína í riðlinum en þurfti að sætta sig við tap í Skjern í kvöld.

Íslensku skytturnar hafa oft verið með betri skotnýtingu en í kvöld. Egill skoraði eitt mark úr fimm skotum og Sigurbergur eitt mark úr þremur skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×