Eigandi vatnsleikjagarðs í Taívan fangelsaður fyrir vanrækslu Samúel Karl Ólason skrifar 26. apríl 2016 08:01 Að mestu var um ungt fólk að ræða og einhverjir brenndust á tæpum helmingi líkamans. Vísir/EPA
Eigandi vatnsleikjagarðs í Taívan hefur verið dæmdur í fangelsi vegna vanrækslu. Fimmtán manns létu lífið og rúmlega 500 slösuðust þegar eldur kviknaði í litardufti sem verið var að úða yfir gesti garðsins í fyrra. Að mestu var um ungt fólk að ræða og einhverjir brenndust á tæpum helmingi líkamans þegar slysið átti sér stað í Formosa vatnsleikjagarðinum fyrir utan Taipei. Lu Chung-chi var dæmdur til fjögurra ára og tíu mánaða fangelsisvistar en samkvæmt frétt BBC hefur hann möguleika á að áfrýja dóminum. Myndbönd af slysinu sýna að duftinu var úðað yfir um þúsund gesti garðsins þar sem þau voru að dansa. Þá kviknaði í duftinu og gátu gestirnir hvergi komist undan. Rannsakendur komust að því að eldurinn kom upp þegar duftið, sem gert er úr maís, lenti á mjög heitu ljósi. Eldurinn breiddist mjög hratt út eins og sjá má hér að neðan. Dómarinn sagði að Lu hefði ekki gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir slysið og séð um að starfsmenn hans sem komu að því að úða duftinu hafi verið nægilega þjálfaðir.
Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Munu hlýða kröfu landsfundar verði tillaga um stjórnarslit samþykkt Innlent Munu ekki láta af herferð vegna launaþjófnaðarins Innlent Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti? Innlent Ákveðinn hópur hafi unnið að niðurstöðunni undir yfirborðinu Innlent Segir valsað um sjúkraskrána eins og á rölti um Kringluna Innlent Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Innlent Kertavaka til minningar um konur sem hafa dáið vegna kynbundins ofbeldis Innlent Fleiri fréttir Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sjá meira