Handbolti

Arnór og félagar úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór skoraði þrjú mörk í sínum síðasta Evrópuleik fyrir Saint-Raphael.
Arnór skoraði þrjú mörk í sínum síðasta Evrópuleik fyrir Saint-Raphael. vísir/stefán
Arnór Atlason og félagar í Saint-Raphael eru úr leik í EHF-bikarnum í handbolta eftir sjö marka tap, 29-22, fyrir öðru frönsku liði, Chambery, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitunum í kvöld.

Saint-Raphael vann fyrri leikinn á heimavelli, 30-25, og var því í fínni stöðu fyrir leikinn í kvöld.

Þessi fimm marka munur dugði Saint-Raphael þó ekki þegar á reyndi en Arnór og félagar töpuðu einvíginu samanlagt 54-52.

Arnór skoraði þrjú mörk í leiknum í kvöld en hann gerði eitt í leiknum fyrir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×