Enski boltinn

Wenger vill fá Sturridge

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daniel Sturridge í leik með Liverpool.
Daniel Sturridge í leik með Liverpool. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er sagður hafa augastað á Daniel Sturridge og ætli sér að klófesta leikmanninn í sumar.

Þetta kemur fram í fjölmiðlum ytra en þar kemur einnig fram að Wenger sé tilbúinn að greiða 30 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Wenger mun vilja styrkja sóknarleik liðsins fyrir næsta tímabil og gera alvöru atlögu að meistaratitlinum. Sturridge hefur verið mikið meiddur á sínum ferli en þegar hann kemur sér á knattspyrnuvöllinn skorar hann alltaf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×