Enski boltinn

Skelfileg tækling: Sköflungurinn á Ramirez opnaðist - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ramirez var borinn af velli.
Ramirez var borinn af velli. vísir
Gaston Ramirez, leikmaður Middlesbrough, var borinn meiddur af velli í leiknum í dag gegn Brighton & Hove Albion þegar liðið tryggði sætið sitt í ensku úrvalsdeildinni.

Meiðsli Ramirez voru aftur á móti sérstaklega ógeðfeld og opnaðist hreinlega sköflungurinn á honum og sást inn í bein. Dale Stephens, leikmaður Brighton & Hove Albion tæklaði Ramirez illa og var hann rekinn af velli fyrir vikið.

Hér að neðan má sjá myndir af Ramirez sem finna má á Twitter en þær eru ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA.


Tengdar fréttir

Middlesbrough aftur í deild þeirra bestu

Middlesbrough er komið aftur í ensku úrvalsdeildina en liðið komst í dag beint upp eftir 1-1 jafntefli við Brighton & Hove Albion í ensku B-deildinni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×