Enski boltinn

United ætlar að ná í Varane í sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Raphael Varane
Raphael Varane Vísir/getty
Forráðamenn Manchester United ætla að reyna klófesta varnarmanninn Raphael Varane frá Real Madrid í sumar.

Þessi franski miðvörður hafnaði tilboði frá United árið 2011 og gekk í staðinn í raðir Real Madrid frá franska liðinu Lens.

Varane hefur spilað um hundrað leiki fyrir Real Madrid og 28 landsleiki með franska landsliðinu. Hann verður í eldlínunni með Frökkum þegar Evrópumótið fer fram í Frakklandi í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×