Enski boltinn

Mata náði í þrjú stig fyrir United gegn Norwich | Sjáðu markið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valencia í baráttunni í dag.
Valencia í baráttunni í dag. vísir/getty
Manchester United vann gríðarlega mikilvægan sigur á Norwich, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram á Carrow Road, heimavelli Norwich.

Leikurinn var nokkuð bragðdaufur en það var Juan Mata sem skoraði eina mark leiksins á 72. mínútu leiksins. Þetta var fimmta mark Mata gegn Norwich í treyju United á ferlinum.

Staða Norwich er ekki góð eftir úrslitin en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með 31 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti þegar aðeins ein umferð er eftir.

Manchester United er nú í fimmta sætinu með 63 stig, aðeins einu stigi á eftir Manchester City sem er í því fjórða.

Mata kemur United yfir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×