Enski boltinn

Enginn Gylfi en Swansea rúllaði samt yfir West Ham

Stefán Árni Pálsson skrifar
úr leiknum í dag.
úr leiknum í dag. vísir/getty
Fjölmargir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki meira með Swansea á tímabilinu vegna meiðsla en það kom ekki að sök þegar liðið mætti West Ham á Upton Park í dag. 

Swansea vann frábæran sigur 4-1 og átti West Ham aldrei möguleika í þeim leik. 

Bournemouth og WBA gerðu síðan 1-1 jafntefli og lið Crystal Palace vann flottan heimasigur á Stoke, 2-1. 

Hér að neðan má sjá öll úrslit dagsins í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×