Enski boltinn

Welbeck frá í níu mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Welbeck er hann meiddist á sunnudag.
Welbeck er hann meiddist á sunnudag. vísir/getty
Tímabilið endaði hrikalega hjá framherja Arsenal, Danny Welbeck, en hann spilar ekki fótbolta aftur á þessu ári.

Welbeck var að koma úr hnéaðgerð og meiðsli hans voru það slæm að hann getur ekki spilað næstu níu mánuðina.

Welbeck meiddist á hné í leiknum gegn Man. City síðasta sunnudag. Þetta eru ekki sömu meiðslin sem urðu þess valdandi að hann missti af sjö mánuðum þessa tímabils.

Hann er þar með endanlega úr umræðunni um landsliðssæti á EM og Arsenal mun heldur ekki geta nýtt krafta hans fyrr en á næsta ári.

Welbeck er orðinn 25 ára gamall og var keyptur til félagsins frá Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×