Innlent

Sprenging í ávísun svefnlyfja á börn hér á landi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Aukningin er margföld frá árinu 2008, mest hjá börnum á aldrinum 10-14 ára.
Aukningin er margföld frá árinu 2008, mest hjá börnum á aldrinum 10-14 ára. vísir/getty
Sprenging hefur átt sér stað í ávísununum svefnlyfja á börn á aldrinum 0 til 14 ára undanfarin ár, að sögn landlæknis. Fjöldi ávísana á svefnlyf var hverfandi árin 2004 til 2007, en jókst til muna árin 2008 til 2015.

Aukningin er margföld frá árinu 2008, mest hjá börnum á aldrinum 10-14 ára. Fleiri drengir en stúlkur fengu ávísað svefnlyfi, en á síðasta ári fengu 31 af hverjum 1000 drengjum á aldrinum 10-14 ára ávísað svefnlyfi að minnsta kosti einu sinni, og 19 af hverjum 1000 stúlkum.

Þetta er margfalt meira en í öðrum Norðurlöndum. Í tilfelli drengjanna er þetta 84 prósent meira en í Noregi og 37 prósent meira en í Svíþjóð, og í tilfelli stúlknanna 83 prósent meira en í Noregi og 47 prósent meira en í Svíþjóð.

Á vef landlæknis segir að þessi þróun hafi verið til skoðunar undanfarin ár, en mörg þeirra barna sem taka svefnlyf eru jafnframt að taka örvandi lyf við ADHD. Gerðar hafa verið athugasemdir við ávísanir lækna og óskað eftir að farið sé eftir klínískum leiðbeiningum.

Áhrif langtímanotkunar svefnlyfja, sem innihalda melótónin, eru ekki þekkt. Telur landlæknir því að ekki eigi að ávísa melatóníni til langs tíma án þess að vandaðar rannsóknir liggi til grundvallar greiningu á svefnvanda barnsins og foreldrum þess gerð sé gerð grein fyrir þeirri óvissu sem ríki um öryggi lyfsins.

Norska blaðið Aftenposten greindi nýlega frá því að notkun barna á svefnlyfjum þar í landi hafi tvöfaldast á síðustu 10 árum og að áhyggjur séu af þessari þróun þar í landi. Rannsókn á lyfjanotkun barna 0 til 17 ára í Noregi 2004-2014 sýndi að notkun barna á svefnlyfjum hefur vaxið á undanförnum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×