Fótbolti

Morata gæti farið upp í kaupin á Pogba

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Morata á EM.
Morata á EM. vísir/getty
Real Madrid gæti staðið nokkuð vel að vígi í baráttunni við Man. Utd um kaupin á Paul Pogba.

Bæði félög eru til í að leggja mikið á sig til þess að fá franska landsliðsmanninn í sínar raðir.

Real er nýbúið að nýta sér ákvæði í samningi sínum við Juventus og keypti Alvaro Morata til baka frá Juventus á afsláttarverði.

Juve fannst mjög slæmt að missa Morata frá sér þar sem hann hefur verið frábær fyrir félagið.

Real er sagt vera til í að setja Morata upp í kaupin á Pogba. Ef það gengur ekki þá er Real til í að selja leikmanninn til þess að eiga upp í verðið á Pogba sem verður mjög hátt.

Chelsea er meðal annars sagt vera til í að greiða afar væna summu fyrir þjónustu Morata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×