Townsend og franskur landsliðsmarkvörður til Crystal Palace Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2016 16:00 vísir/getty
Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á tveimur leikmönnum. Þetta eru enski kantmaðurinn Andros Townsend og franski markvörðurinn Steve Mandanda. Townsend skrifaði undir fimm ára samning við Palace sem komst í úrslit ensku bikarkeppninnar á síðasta tímabili þar sem liðið tapaði fyrir Manchester United. Palace greiddi 13 milljónir punda fyrir Townsend sem kom til Newcastle frá Tottenham Hotspur fyrir 12 milljónir punda í janúar. Palace og Newcastle hafa því eytt samtals 25 milljónum punda í þennan 24 ára gamla leikmann á hálfu ári. Townsend spilaði ágætlega með Newcastle á síðasta tímabili; skoraði fjögur mörk í 13 leikjum og gaf tvær stoðsendingar. Það dugði þó ekki til að halda liðinu í ensku úrvalsdeildinni. Townsend hefur skorað þrjú mörk í 10 landsleikjum fyrir enska landsliðið en hann var á biðlista fyrir EM í Frakklandi.BREAKING: #CPFC have completed the signing of @andros_townsend for £13m on a five year deal!#WelcomeAndrospic.twitter.com/lb759ljtkw — Crystal Palace F.C. (@CPFC) July 1, 2016Framherjinn Dwight Gayle fór hina leiðina, frá Palace til Newcastle fyrir 10 milljónir punda. Gayle skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle sem leikur í ensku B-deildinni á næsta tímabili. Mandanda skrifaði undir þriggja ára samning við Palace en hann kemur til Lundúnaliðsins frá Marseille sem hann hefur leikið með frá árinu 2008. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Mandanda, sem er fæddur í Kongó, hefur verið einn besti markvörður frönsku úrvalsdeildarinnar og á 22 A-landsleiki að baki fyrir Frakkland. Mandanda, sem er 31 árs, er í leikmannahópi Frakka á EM en þeir mæta sem kunnugt er Íslendingum í 8-liða úrslitum á sunnudaginn.BREAKING: #CPFC are delighted to announce the signing of @SteveMandanda on a three year deal! #BienvenueStevepic.twitter.com/H3hmXo0Rq9— Crystal Palace F.C. (@CPFC) July 1, 2016
Enski boltinn Mest lesið Rekin úr Ólympíuþorpinu í París en selur nú áskriftir á OnlyFans Sport Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Enski boltinn Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Enski boltinn Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll Handbolti Stefnir á endurkomu á næstu vikum: „Mæti með tvö glæný hné“ Körfubolti „Stór partur af mér sem persónu“ Handbolti Tuchel búinn að skrifa undir og risastór bónus í boði Sport Brady samþykktur en þarf að fylgja ströngum reglum Sport Segir Mbappé steinhissa og aldrei án vitna Fótbolti „Við vorum bara niðurlægðir“ Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Sjá meira